Færslur: 2010 Júlí

23.07.2010 15:47

Skemmtileg sending frá Hirti L. Jónssyni

Hann Hjörtur frá Tálknafirði sendi okkur söguna hér að neðan og myndir með sem eru í myndaalbúminu undir heitinu Sniglaferð 1985. Endilega takið hann til fyrirmyndar og sendið mér eitthvað til að setja inn. Munið að ekkert gerist á síðunni nema það komi frá ykkur félagsmenn góðir!

Mín fyrsta Sniglaferð 14.-17. júní 1985.

Á vormánuðum 1985 kom upp hugmynd frá Skussanum #11 að fara á vestfirði 17. júní helgina vegna þess að 17. júní það ár bar upp á mánudag var hægt að vera með langa ferð.

Áður hafði Skussinn viðrað þessa hugmynd við mig og hvort ekki væri hægt að koma góðum hópi Snigla í gistingu hjá mér og jafn vel öðrum Sniglum á Tálknafirði. Ég tók að mér í félagi við Snigla frá Tálknafirði og Patreksfirði að redda þessu og að við Vestur-Sniglar eins og við vorum oft kallaðir þá þessum tíma tækjum að okkur alla skipulagningu og dagskrá um alla helgina.

Í Sniglafréttum 2. árg. 2. tbl. Maí 1985 var þessi ferð auglýst svohljóðandi: Júníferð. Mæting kl.19:30 í Sundakaffi föstudaginn 14. júní. Farið í Bjarkarlund og gist þar, BASL á Vestfjörðum sér síðan um skipulagningu á því sem eftir er ferðarinnar. Mætt í bæinn til að ná skrúðgöngunni þann 17.

   Óli Mótorskussi #11 skrifaði síðan um þessa ferð í Júlíblað Sniglafrétta skemmtilega ferðasögu og mun ég vitna í þá sögu nokkrum sinnum í þessari upprifjun: #11 skrifaði: Við Sundakaffi voru samankomnir örfáir-allveg sárafáir- meðlimir Bifhjólasamtaka Lýðveldisins að leggja af stað í eina af hinum landsfrægu Sniglaferðum. Þegar útséð var um að fleiri mundu mæta lögðu 8 manns af stað á 4 skellitíkum og 2 blikkbeljum. :

Eitthvað gekk þessum ferðafélögum ferðin vestur í Bjarkarlund hægt, en komust samt. Morguninn eftir var tjöldum pakkað og haldið í vestur í svartaþoku snigluðust  Sniglar áfram nánast á hraða Snigilsins. Svo svört var þokan að einn keyrði út af veginum í einni beygjunni, en slapp með skrekkinn. Höfðu ferðafélagarnir orð á því að þokan hafi verið svo þykk að hjólið hafi lagst hægt á hliðina og að hann hafi eiginlega ekki dottið því þokan var svo þykk.

Á hádegi á laugardag 15. júní voru mættir að landamerkjum Austur og  Vestur-Barðastrandasýslu  Vestur-Sniglar og Ísfirðingar. Þetta var móttökunefndin á 9 hjólum (Honda XL500R, Honda XL500S, Honda CB 650, Honda CB750K, Honda CB750F, Kawasaki Z650, Kawasaki Z1R1000, Kawasaki GPz550,Kawasaki GPz1100), en við sem í móttökunefndinni höfðum ekki hugmynd um hversu margir gestir væru væntanlegir. Það voru viss vonbrigði að ekki nema 4 hjól voru í hópnum (Honda CBX, Suzuki GT550, Suzuki Katana 650 og Moto Guzzi GT 850) einn Trabbi og einhver bíll sem ég man ekki hvað var, en var eins og appelsína á litin.  Eftir stutt stopp á sýslumörkum var ekið í Hótel Flókalund og drukkið kaffi í boði Vestur-Snigla, en þar kynntu Sniglar sig fyrir hvorum öðrum. Síðan var ekið nánast án stopps á Tálknafjörð. Þegar þangað var komið var farið í fjölskyldulaug þeirra bræðra Rúnars # 84 og Viðars # 85.  

Mótorskussinn #11 skrifaði: Í sundlauginni fór fram hundahreinsun. Er þrifnaði var lokið hossaðist Sniglahjörðin í einkavillu Hjartar og fljótlega fóru menn að skola sig að innan, sjálfsagt vegna óstöðvandi þrifnaðaræðis sem runnið var á liðið. Þegar þessi innanþvottur var vel byrjaður birtist Halli #25 og Lauga konan hans á Suzuki GS 550. Hjörtur gerð'i það ekki endasleppt og áður en Dóri hafði hikstað þrisvar , var fyrir hans atbeina komin rúta að dyrum hallarinnar og skyldi hún flytja Snigla og aðra skemmtanasjúklinga á dansiball á Bíldudal.

Þegar ég vaknaði snemma morguninn eftir, en þá voru sofandi Sniglar um allt húsið hjá mér í svefnpokum, í öllum herbergjum, stofunni og eldhúsinu mátti heyra hrotur sem samanlagt virkaði eins og lágværar mótorhjóladrunur úr óþekktu mótorhjóli.

Sniglar voru ræstir til morgunverðar og nú átti að halda á Látrabjarg. Nokkurn tíma tók að ná skjálftanum úr sumum, en eftir góðan morgunmat og sterkt kaffi voru allir klárir fyrir þennan vestasta odda Íslands. Alls fóru 13 hjól á Látrabjarg þennan dag í frábæru veðri. Sennilega hafa ekki oft sést eins mörg mótorhjól við vitann á Látrabjargi síðan í þessari ferð.

 Mótorskussinn # 11 komst ekki með á bjargið vegna þess að öll hans fjölskylda bjó á Tálknafirði og taldi hann sig vera löglega afsakaðan því hann þurfti að sýna allri ættinni kærustuna sína Mótorskyssuna # 94. Um kvöldið var því tekið rólega í húsinu hjá mér og fór kvöldið í að segja hetjusögur og lesa mótorhjólablöð.

 Um morguninn á 17. júní var vaknað snemma til að ná ferjunni Baldri yfir Breiðafjörð. Með látum var skelltu Sniglar í sig morgunmat og var gefið fullt rör á Bíldudal og þaðan um Arnarfjörð í Flókalund. Annað hvort keyrðu Sniglar svona hratt eða að Baldur var seinn, en eftir tæplega klukkutíma bið kom báturinn og voru hjólin hífð um borð, en hvar var Stjáni Afi á Trabbanum?  Kallinn var tíndur og enginn vissi neitt um hann og það síðasta sem ég sá til Snigla var um borð í Baldri á leið suður Breiðafjörð syngandi Hæ, hó, jibbí-jei-það er kominn 17. júní.

Þegar ég kom heim til mín á Tálknafjörð var Stjáni Afi þar að plana heddið á Trabbanum því heddpattningin hafði farið í Trabbanum þegar hann lagði af stað um morguninn. Stjáni var fljótur að redda þessu og ók alla firðina á Trabbanum og náði Sniglum áður en þeir komust alla leið til Reykjavíkur.

 

Í þessa ferð fóru: Á bílum: Trabant: Stjáni Afi #24, bíll 2. Siggi Stólaskelfir # 29 og kærasta, bíll 3 Ágústa Waage # 107 og Lára, Vargurinn # 127.

Á hjólum:Mótorskussinn # 11 og Mótorskyssan # 94 á Moto Guzzi,  Halli # 25 og Lauga á Suzuki GS 550, Dóri # 30 Suzuki GT 550, Helgi Heppni # 43 Suzuki Katana 650, Biggi Guðna # 105 á Honda CBX 1048.

Frá Ísafirði: Guðmundur Valdimarsson # 117 á Kawasaki GPz 1100, Guðmundur Sigurðsson # 118 á Kawasaki Z 650.

Frá Patreksfirði:  Alli # 90 á Honda CB 750k, Skjöldur # 91 á Honda CB 650,  bræðurnir Hjörtur og Gilbert Þráinssynir á Kawasaki GPz 550 (ekki Sniglar) og Davíð (ekki Snigill) á Honda XL 500s.

Frá Tálknafirði: Hjörtur Líklegur # 56 á Honda XL 500R, Rúnar Pálsson # 84 á Honda CB 750F, Viðar Pálsson # 85 á Kawasaki Z1R 1000.

 

Eins og ég man þetta fyrir 25 árum,  Hjörtur L. Jónsson # 56. Túngötu 19 Tálknafirði.  


 

  • 1